|
|
Notkun upplýsinga um veður og sjólag Siglingastofnun Íslands hefur nú um tíu ára skeið rekið upplýsingakerfið Veður og sjólag á vefsíðu sinni www.sigling.is og í símsvara stofnunarinnar 902 1000. Rekstur kerfisins er kostaður af vitagjaldi sem öll skip og bátar greiða. Alls rekur stofnunin sjálf 9 öldumælingadufl og níu veðurstöðvar en einnig birtir kerfið upplýsingar frá 20 veðurstöðvum í eigu sveitarfélaga og Veðurstofu Íslands. Kerfið er stöðugt í þróun og uppbyggingu og sem dæmi má nefna að í sumarið 2004 var sett upp veðurstöð á Ingólfshöfða og í Flatey á Skjálfanda sumarið 2005, ásamt því að símsvarabúnaður 902 1000 var endurnýjaður auk þess sem upplýsingar frá ölduduflum eru nú birtar á textavarpi RÚV á síðu 191. Notkun símsvara er mikil eða allt að 6500 upphringingum á mánuði yfir veturinn. Innkomur á vefsíðu um veður og sjólag eru að meðaltali um tæp 8000 á mánuði. Á vefsíðu Siglingastofnunar eru einnig birtar síður með veðurspá og ölduhæðarspá einu sinni á dag allt að 4 daga fram í tímann. Þessar spár byggja á gögnum frá Veðurmiðstöð Evrópuríkja í Englandi (ECMWF) í samstarfi við Veðurstofu Íslands. Ölduhæðaspárnar hafa verið bornar saman við mælingar á duflum Siglingastofnunar og það hefur sýnt sig að spá næsta sólarhrings er að öllu jöfnu mjög áreiðanleg en áreiðanleikinn minnkar eftir því sem spáð er lengra fram í tímann. Ekki er tiltæk vitneskja um hverjir nota vefsíðu og símsvara mest en ætla má að bátasjómenn og þá helst smábátasjómenn séu drjúgir við að nýta sér þessar upplýsingar. Markmiðið er að gögnin verði aðgengileg og notendavæn fyrir sjófarendur, vísindamenn og aðra þá sem þurfa á slíkum gögnum að halda. Það skal tekið fram að Siglingastofnun Íslands ábyrgist á engan hátt að þau gögn sem hér má finna séu ætíð aðgengileg og uppfærð. Siglingastofnun Íslands er ekki undir nokkrum kringumstæðum ábyrg fyrir skaða sem hljótast kann af völdum skorts á upplýsingum eða rangra upplýsinga á heimasíðu og símsvara hennar.
Fyrir þá sem róa á mið sem eru í nokkurri fjarlægð frá ölduduflum má benda á að með smá yfirlegu yfir ölduspá á netinu og með hliðsjón af veðurspá og mælingum frá ölduduflum má öðlast staðgóða þekkingu á tengslum ölduhæðar á viðkomandi dufli og öldufars á eigin miðum. Þetta má sjá af myndum sem hér fylgja. Ölduspá
Ölduhæð Stefna og sveiflutími
Horft fram á veginn Það er von Siglingastofnunar að geta birt veður- og ölduspár tvisvar á dag í vetur. |
|