Öldudufl
Á myndinni eru gefin upp tvö gildi fyrir öldu. Þau eru kennialda í metrum og meðalsveiflutími í sekúndum. Hæð öldu er mæld frá öldudal að næsta öldutoppi.
Ölduhæð á myndinni er kennialda og er skilgreind sem meðaltal af hæsta þriðjungi af öllum öldum. Hæsta alda miðað við 200 öldur getur verið 63% hærri en kennialdan.
Sveiflutími er meðaltími á milli aldna.
Lengd öldu (milli toppa) er 1,56 sinnum sveiflutími í öðru veldi.

Dæmi:
Kennialda 2,7 m
Meðalsveiflutími 7,9 s
Öldulengd = 1,56*7.9*7.9 = 97,4 m

 

Með því að smella innan rammans fást mæligögn frá dufli undanfarnar 24 klst.


Staðsetning dufla

Garðskagi

64° 3,150´N

22° 52,62´V

7,0 sml. frá Garðskagavita

Bakkafjara 63° 30,60´N 20°08,609´V 1,6 sml. réttvísandi 169° frá Bakkafjöru

Blakknes

65° 41,87´N

24° 46,69´V

13,3 sml. frá Bjargtangavita

Straumnes

66° 26,30´N

23° 22,00´V

5,5 sml. frá Straumnesvita

Drangsnes

65° 46,19´N

21° 08,26´V

8,5 sml. frá Malarhornsvita

Grímseyjarsund

66° 17,50´N

18° 11,50´V

7,3 sml. frá Gjögurtá

Kögur

65° 38,89´N

13° 37,59´V

6,6 sml. frá Kögurvita

Hornafjörður

64° 11,81´N

15° 11,31´V

2,2 sml. frá Hvanneyjarvita

Surtsey

63° 17,14´N

20° 20,70´V

4,6 sml. frá Geirfuglaskeri

Grindavík

63° 48,80´N

22° 27,63´V

1,6 sml. frá Hópsnesvita


Leturstærðir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli